Körfubolti

Ræðir veru sína í rúss­nesku fangelsi í nýrri bók

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Brittney Griner sat tíu mánuði í fangelsi í Rússlandi.
Brittney Griner sat tíu mánuði í fangelsi í Rússlandi. AP Photo/Alexander Zemlianichenko

Körfuboltakonan Brittney Yvette Griner eyddi tíu mánuðum í rússnesku fangelsi fyrir litlar sakir. Hún er nú að gefa út bók þar sem hún fer yfir mánuðina tíu og það þegar henni var loks hleypt heim til Bandaríkjanna en í staðinn þurftu Bandaríkin að láta „Kaupmann dauðans“ af hendi.

Vísir fjallaði mikið um mál Griner á sínum tíma en ásamt því að leika körfubolta í WNBA-deildinni í Bandaríkjunum þá spilaði hún einnig í Rússlandi þegar WNBA-deildin var í fríi frá 2015 til 2022. Þar áður hafði hún einnig spilað í Kína. 

Í febrúar 2022 var hún handtekin á flugvelli í Rússlandi fyrir að vera með rafrettu sem innihélt lítið magn af kannabisi.

Við tóku skelfilegir tíu mánuðir þar sem hún mátti dúsa í rússnesku fangelsi en hún var dæmd til níu ára fangelsisvistar vegna rafrettunnar. Á meðan hún sat inni þá gerði eiginkona hennar, Cherelle, hvað hún gat til að fá Griner heim.

Cherelle Griner og Joe Biden, forseti Bandaríkjanna.Chip Somodevilla/Getty Images

Á endanum tókst Cherelle með hjálp bandarískra stjórnvalda að semja við rússnesk yfirvöld um að leyfa Griner að snúa heim. Það kostaði þó sitt en Bandaríkin þurftu að láta af hendi mann sem gengur undir nafinu „Kaupmaður dauðans.“ Sá heitir Viktor Bout og er rússneskur vopnasali.

Hin 33 ára gamla Griner er nú að gefa út ævisögu sína sem ber heitið „Kem heim.“ Þar fer hún yfir hvað átti sér stað í Rússlandi og hvaða áhrif það hefur haft á hana en lengi vel átti hún erfitt með svefn. Hún mun svo að öllum líkindum ekki sofa vel næstu mánuðina heldur þar sem það styttist í að Cherelle fæði þeirra fyrsta barn. 

Griner varð WNBA-meistari árið 2014, hefur níu sinnum tekið þátt í stjörnuleik WNBA og var stigahæsti leikmaður deildarinnar bæði 2017 og 2019. Þá varð hún rússneskur meistari frá 2017 til 2019 og EuroLeague-meistari fjórum sinnum ásamt því að vinna gull á Ólympíuleikunum í tvígang.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×